Vörumerking á IceFish 2026

Við verðum á sjávarútvegssýningunni IceFish í Fífunni, Kópavogi, 22.–24. september, á bás F-20.

Vörumerking tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september 2026.

Á sýningunni kynnum við fjölbreyttar merkingarlausnir fyrir sjávarútveg og fiskeldi sem styðja við rekjanleika, skilvirkni og gæði í framleiðslu og pökkun sjávarafurða.

Við verðum á sameiginlegum bás með Samhentum og Formum, þar sem gestir geta líka kynnt sér heildarlausnir Samhenta fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu: umbúðir, pökkunarvélar, sjálfvirknilausnir og EPS-fiskikassa. Sjáumst á bás F-20.

Allar fréttir