Um Vörumerkingu

Í rúm sextíu ár höfum við þróað umbúða- og merkingarlausnir á pappír, plast og álfilmu í samstarfi við viðskiptavini okkar.

Gildin okkar

Þjónusta
Möguleikarnir eru óþrjótandi. Sölumenn okkar aðstoða við val á hentugustu og hagkvæmustu lausninni.
Gæði
Framleiðslusalurinn uppfyllir ströngustu kröfur matvæla- og lyfjaeftirlits um umbúðir sem snerta matvæli.
Áreiðanleiki
Við tryggjum framleiðslu- og afhendingaröryggi og afhendum vöruna á tilsettum tíma.

Saga

  1. 1962

    Karl M. Karlsson & Co. er stofnað. Í fyrstu eru prentuð límbönd, fólíur og fleira sem ekki hafði verið prentað á Íslandi áður.

  2. 1972

    Fyrirtækið tekur upp nafnið Vörumerking og límmiðar verða smám saman meginstoðin.

  3. 2012

    Samhentir kaupa Vörumerkingu.

  4. 2013

    Vélakostur endurnýjaður og flutt í sérhannað hús í Suðurhrauni 6. Hluti salarins er lokaður fyrir matvæla- og lyfjaumbúðir, með tíðari loftskiptum.

  5. 2022

    Sextíu ára afmæli og nýtt merki, unnið með hönnunarstofunni Jökulá. Blái liturinn og V-ið halda sér.

  6. 2026

    Vörumerking tekur yfir rekstur Sigurplasts, sem framleiðir blásnar PET- og HDPE-flöskur.

Minni sóun

Stafræna prentvélin gerir stutt upplög hagkvæm, afskurður er lágmarkaður og allur úrgangur fer í endurvinnslu.

Vörumerking er hluti af Samhentum, sem bjóða heildarlausnir í umbúðum, pökkunarvélum og sjálfvirkni.

Fólkið sem þú talar við

Sala

Forvinnsla