Andlit vörunnar þinnar.

Límmiðar, állok, pökkunarfilma og plastkort, prentað í Garðabæ síðan 1962. Við aðstoðum þig frá hönnun til framleiðslu.

BRCBRC-vottuð framleiðsla fyrir matvæli og lyf

Það sem við prentum

Pappír, plast eða ál. Eitt hundrað miðar eða milljón. Segðu okkur hvað varan þarf og við finnum lausnina.

1962Stofnað sem Karl M. Karlsson & Co.
12litir í einni prentun
BRCvottun fyrir umbúðir sem snerta matvæli
24/7opið fyrir pantanir á vefnum

Fyrir hverja prentum við?

Stærstu viðskiptavinir okkar eru í matvæla-, drykkjar- og lyfjaiðnaði. En við prentum líka fyrir einyrkja, félagasamtök, opinbera aðila og erlend fyrirtæki.

Matvæli
Miðar, állok og filmur sem þola kæli og raka.
Drykkir
Drykkjar- og bjórmiðar og merkingar allan hringinn.
Lyf og vítamín
Álfilma fyrir lyfjaspjöld og miðar fyrir glös.
Sjávarútvegur
Merkingar sem styðja rekjanleika í pökkun sjávarafurða.
Viðburðir og ferðir
Aðgöngumiðar og brottfararspjöld.
Félög og fyrirtæki
Félagsskírteini, starfsmannakort og vildarkort.

Teiknaðu miðann þinn

Veldu lögun, stærð og efni og sjáðu miðann taka á sig mynd. Beiðnin fer beint til sölumanns sem svarar með tilboði.

Lögun
Efni
Opna tilboðsbeiðni
90 mm60 mmÞín vara

Frá hugmynd að rúllu

  1. Ráðgjöf

    Sölumaður fer yfir efnisval, magn, útlit og verð með þér.

  2. Forvinnsla og próförk

    Við yfirförum skrárnar, finnum stans og sendum þér próförk til samþykktar.

  3. Prentun

    Prentað í allt að 12 litum, lakkað eða lamínerað, og stansað.

  4. Afhending

    Á rúllum eða örkum, tilbúið í áfyllingarvélina, á réttum tíma.

Komdu í heimsókn eða hringdu

Sölumenn okkar taka vel á móti þér í Suðurhrauni.

414 2500

vorumerking@vorumerking.is
Suðurhraun 6, 210 Garðabær
Mán–fim 8–16, fös 8–15