Viðskiptakjör

Helstu atriði viðskiptaskilmála Vörumerkingar ehf. vegna sölu og afhendingar á prentverki. Skilmálarnir gilda nema annað sé samið skriflega.

  1. Tilboð og samningur

    Tilboð er bindandi í 14 daga frá tilboðsdegi. Samningur er bindandi þegar pöntun, samþykkt tilboð eða skriflegur samningur liggur fyrir.

  2. Verð

    Verð miðast við staðgreiðslu og er gefið upp án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Aukavinna vegna ófullnægjandi frumgagna eða breytinga eftir að samningur tekur gildi er ekki innifalin.

  3. Greiðsla

    Greiðsluskilmálar miðast við staðgreiðslu nema annað sé samið. Félagið getur krafist fyrirframgreiðslu áður en vinna hefst. Vanskil geta tafið vinnslu og afhendingu.

  4. Prentplötur

    Við endurprentun getur þurft að endurnýja prentplötur. Sölumaður upplýsir um það í tilboði.

Fullir skilmálar fást hjá sölumönnum.