Plastkort
Plastkort í kreditkortastærð, með eða án segulrandar, nándarkort og kort með nöfnum og númerum.
Kortin fást hvít, lituð eða gyllt, með blandaðri prentun, fólíuþrykkingu og segulröndum í nokkrum litum. Við prentum breytileg nöfn og númer og kóðum segulrendur með þeim gögnum sem þú vilt.
Við eigum líka aukahluti fyrir kortin: vasa, hálsbönd og festingar.
Möguleikar
- Með eða án segulrandar
- Nándarkort
- Nöfn og númer
- Fólíuþrykking
- Hvít, lituð eða gyllt
- Vasar, hálsbönd og festingar
Dæmi um notkun
- Félagsskírteini og VIP-kort
- Starfsmannakort og stimpilklukka
- Hótellyklar
- Vildarkort með punktakerfi
- Skafkort