Ráðgjöf og hönnun
Sölumenn okkar og hönnuðir hafa víðtæka reynslu. Leitaðu ráða um útlit, efnisval, magn og gæði áður en þú pantar.

- Efnisval
- Pappír, plast, málmáferð eða ál. Við hjálpum þér að velja efni sem þolir það sem varan lendir í: kæli, raka, sól eða uppþvottavél.
- Hönnun og forvinnsla
- Hönnuðir okkar setja upp miðann eða aðlaga skrárnar þínar að prentun, með réttri blæðingu, litum og stansi.
- Stansasafn
- Við eigum stórt safn af stönsum. Oft er til stans í réttri stærð, sem sparar bæði tíma og kostnað.
- Litir
- Við eigum alla liti. Gefðu upp Pantone-númer og við prentum litinn sem vörumerkið þitt á.

Tækni sem fylgir tímanum
Á síðustu árum hafa orðið miklar tækniframfarir í prentun. Við fylgjumst með og bjóðum það nýjasta sem er betra, hentugra og hagkvæmara, eins og stafræna prentvél fyrir smá upplög og nýja vél fyrir álfilmu.