Nýtt merki á sextugsafmælinu

Nýtt og uppfært merki, unnið með hönnunarstofunni Jökulá. Blái liturinn og V-ið halda sér.

Vörumerking fékk nýtt og uppfært merki, unnið í góðu samstarfi við hönnunarstofuna Jökulá. Breytingin er nauðsynleg uppfærsla svo merkið skalist vel á öllum tækjum og miðlum nútímans.

Við höldum fast í bláa litinn okkar og V-ið góða, sem hefur verið sterkt merki í áranna rás. Breytingin kom á 60 ára afmælisárinu.

Allar fréttir