Vörumerking tekur yfir rekstur Sigurplasts
Frá og með 1. janúar 2026 er Sigurplast, framleiðandi blásinna PET- og HDPE-flaskna, hluti af Vörumerkingu.

Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026. Sigurplast var stofnað árið 1960 og hefur um áratuga skeið sérhæft sig í framleiðslu á blásnum PET- og HDPE-flöskum.
Með sameiningunni skapast sterkari rekstrargrundvöllur, aukin stærðarhagkvæmni og ný tækifæri til uppbyggingar og vaxtar. Fyrirhugað er að flytja starfsemina í nýja og nútímalega framleiðsluaðstöðu.
Vörumerking er BRC-vottað fyrirtæki og framtíðarsýnin er að Sigurplast fái sambærilega vottun. Allir reikningar vegna Sigurplasts eru nú gefnir út af Vörumerkingu, kt. 560771-0109. Nánari upplýsingar veitir Páll Elísson, palli@vorumerking.is.